Photo / Video / Sound in Iceland

Advania

Ásgeir Helgi Þrastarson

Ljósmyndun · myndbandsgerð · hljóð · eftirvinnsla

Ég hef yfir 10 ára reynslu af ljósmyndun, faglega reynslu af myndbandsgerð og tvær diplómur í hljóði frá Englandi. Hér eru valin verkefni sem sýna hvernig ég vinn með hugmyndir, tökur, hljóð, klippingu, eftirvinnslu og afhendingu efnis fyrir stafræna miðla.

Ljósmyndun, lýsing, myndbygging, vörur, fólk, viðburðir.

Þetta er einungis brotabrot af þeim ótal verkefnum sem ég hef unnið. Glöggir áhorfendur sjá að meirihlutinn tengist tónlist en á þeim vettvangi hef ég öðlast gríðarlega mikla reynslu þar sem sá vettvangur býður ekki þann möguleika að klikka eða gera mistök.

Ég reynslu af vöruljósmyndun ásamt portrait tökum af fólki í stúdíói síðan árið 2017.

 Vídeóframleiðsla

Ég hef unnið í allskyns vídeóframleiðslum og fyrstu tvö vídeóin voru skotin, klippt og litaleiðrétt af mér. Vídeóin tvö sem eru fyrir neðan, tekin af YouTube voru skotin af mér en klippt af öðrum. Dæmin eru svo mörg sem ég gæti sýnt og þetta er bara toppurinn af ísjakanum.

Nördaskapurinn

Ég er ótrúlega mikill áhugamaður um tæki, hvort sem um er að ræða myndavélar, linsur, míkrófónar, hljóðfæri eða annað sem tengist þessu öllu og ég hef reynslu af öllum gerðum myndavéla eins og ARRI, RED, Sony o.fl.

Sjálfur nota ég fyrst og fremst Sony og á sjálfur Sony FX6 sem er mín aðal vél fyrir vídeóframleiðslu en svo er ég með Sony A1 fyrir ljósmyndun og oft notuð sem auka vél í vídeó. Ofan á það á ég fleiri vélar eins og Lumix S5II, DJI Pocket 3, Lumix S9 sem eru allar frábærar í framleiðslu.

Ég er sjálfur með mína eigin YouTube rás þar sem ég er að gefa út tvö vídeó í hverri viku, alltaf 10+ mínútur að lengd þar sem ég er að prófa hljóðfæri og tengdar vörur. Þetta kannski tengist atvinnuumsókninni ekki beinlínis nema að þeim hætti að ég framleiði gríðarlega mikið af myndaefni einn og sér, sem segir eitthvað til um á hversu alvarlegu stigi þetta áhugamál er.

Ég gæti líklega skrifað langa ritgerð um það hvað ég hef gert og hvað ég get gert en ég vil enda þetta á þessum orðum:

Þið eruð að leita að mér.